fimmtudagur, júní 26, 2008

þó svo að enginn lesi þessa síðu lengur, þá ætla ég að reyna að skrifa á hana nokkrum sinnum á ári.
fréttaflutningur dagsins er í boði cfin. ég er nefnilega í vinnunni og er einstaklega löt. það er kannski vegna þess að mér finnst ég hafa verið mjög dugleg vinnukona undanfarið.

annars er hálfgerð gúrkutíð núna og ég að verða að ellismelli sem hugsar ekki um annað en veður - hitastig og vindhraði er mitt svið. það má helst nefna að ég fór til kanada á ráðstefnu í maí. það var ágætis gleði þar. gerða var líka að ráðstefnast og það var notó að hitta hana. og svo hitti ég líka lilju vald businessdömu sem var að selja pillur í toronto. svo fór ég næstum því aftur til útlanda í maí. þá fór ég með andersi og pabba hans í heimsókn til höfuðborgarinnar þar sem bróðir hans býr. við héldum uppá afmæli á bát sem silgdi í blíðskaparveðri um roskildevatnið. hitastig var væntanlega yfir 24.5 gráður þegar bátsferðin endaði um hálftíu. vindhraði: afskaplega lítill. í dag er vindhraðinn frekar mikill og átti ég í stökustu vandræðum með að hjóla upp brekkuna í vinnuna með vindinn í fésið á mér. hitastig: 17 gráður. ég fór svo líka í vinnuferð til frakklands um daginn þar sem ég tók andersinn minn með mér og hugguðum við okkur í lyon í nokkra daga fyrir fund. ég týndi kortinu mínu eins og ég geri svo oft þegar ég þarf á því að halda. ég týndi líka kortinu af lyon á stórkostlega hátt og svo einhverjum fleiri smámunum. annars var þar vindhraði ágætur og hitastigið lélegt. ég lifði það samt af þar sem mér líkar í raun ekki við hita og sól - held bara að mér líki við þessi kvikindi. þar borðaði ég mikið af góðum mat og athyglisverðum. borðaði andalifur og kálfalifur. sú fyrrnefnda var sérstök en ágæt, en hin var frekar ósmekkleg í munni - eins og ónýt lifrarkæfa. ég fór líka á listasýningu með dóti eftir keith haring sem var alveg mjög skemmtileg. kíktum á institut lumiére sem er vagga kvikmyndagerðar... mjög skemmtilegt. svo voru líka drukknar nokkrar rauðvínsflöskur. hitastigið breyttist í danaveldi við lendingu í billund. frá 30 gráðum í -10 gráður. svoleiðis hefur það verið síðan. svo hitti ég fleiri viðskiptadömur um helgina síðastliðna. svana og sirrí voru á fundi í kbh - þær voru hressar og fagrar. ég og svana vænuðum, dænuðum, shoppuðum, töxuðum og snökkuðum yfir helgina og var það sérdeilis fínt, enda ekki á hverjum degi maður fær að njóta samveru svona eðaldömu. toppur helgarinn var líkalega að henrik vibskov talaði við okkur í búðinni hans. annars langar mig líka að vera viðskiptadama í staðinn fyrir að vera akademísk dama.
jæja. annars er ekki mikið hægt að þræða líf mitt meira. ég get svo sem sagt frá deginum í gær þangað til í dag. ég fór á útsölu og keypti fyrir 2 þús danskar og var það einstök tilfinning. svo eldaði ég tælenskar fiskibollur, drakk tvo bjóra, horfði á fótbolta, spilaði kasino, svaf, vaknaði seint, borðaði morgunkorn, hjólaði á móti vindi, fór á klósettið, fékk mér kaffi, vann í tvo klukkutíma, gafst upp og hér er ég kominn.

áfram valur og íslenska kvennalandsliðið í fótbolta.

luv...

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

vitleysa er þetta .. ég les síðuna þína mjög reglulega og gæti notað síðustu færslu sem einleik í inntökuprófi í leiklistarskóla ég kann hana svo vel.

ég er líka upptekin af hitastigi og vindhraða (sem því miður fer uppávið) og tanorexían blómstrar í augnablikinu.

farðu vel með þig kella og ekki láta líða svona langt á milli færslna.

hils.... SigríðurTan

4:01 e.h.  
Blogger Vala said...

jamms, ég er líka alltaf að lesa.. gaman að heyra frá þér :)

4:23 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ooooooooog ég líka :)

Mikið væri nú gott að hafa þig hérna á heita klakanum (20°C í dag) því það virðast allir vera í fríi í útlöndum og ég hangi bara og geri varla neitt nema éta lúgumat :(

En ég er nú samt búin að afreka að koma pókeræði inn í hópinn :) Lilja og Benni eru meira að segja búin að kaupa pókertösku með öllu tilheyrandi.

Knús
Eivor

8:15 e.h.  
Blogger Not your goddess said...

Alltaf gaman að lesa þig Krissa mín, get nú ekki skammast í þér fyrir að skrifa sjaldan, geri það enn sjaldnar sjálf. Meira að segja þó ég sé í sumarfríi. En hvað get ég sagt, fór í sund, á bókasafnið og á róló! Brjálað stuð og læti!

5:51 e.h.  
Blogger Unknown said...

Á ekki að koma jólafærsla?

8:39 e.h.  
Blogger Not your goddess said...

Hæskan, ertu bara alveg hætt? Ég er byrjuð á nýju, luv, Harpa

3:46 e.h.  
Blogger Vala said...

koma svo krissa!! þú þarft að fara að herða þig til að standa við "nokkrum sinnum á ári" markmiðið :)

5:21 f.h.  
Blogger Unknown said...

Ég vil óska þessari færslu til hamingju með eitt ár.

8:10 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home