fimmtudagur, mars 17, 2005

Flóðhestur

Já, halló. Er að reyna að hjálpa til við að láta æskudrauminn hennar Trine minnar rætast. Þannig er mál með vexti að þau eru tester á den elektriske barometer... sem er svona listi í ágætis útvarpsþætti. Maður þarf bara að smella og signa sig inn og svo smella atkvæðum á jf & spw. Þið örfáu sem leggið leið ykkar hingað inn... ef þið getið eytt tíma í það... þá getið þið líka hjálpað til við að gera draum stúlkubarnsins að veruleika.
Svo langar mig líka að deila með ykkur eilítið skondnu bréfi... svarið er ekki minna einkennilegt! Meira pakkið þetta Indre Mission lið.
Annars var ég á barnum í gær og hellti í mig nokkrum drykkjum. Fékk þessa rooosalegu löngun til að djamma en lét það þó ógert. Geri það alltof sjaldan þessi misserin. Löngunin náði toppnum þegar ég heyrði hljóma um salinn kriss kross to make ya jump jump, call him mister raider call him mister wrong og there´s no other way. Best að maður noti tækifærið og leyfi þessari löngun að njóta sín á Íslandinu góða. Þangað ætla ég að koma með heitt hjarta, pelsinn hennar Sonju, hamborgarhrygg, kæfu, súran rass, sjö pör af skóm, nokkrar nærbuxur og blokkflautu.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

já mundu eftir blokkflautunni :)

Hvaða dag var það sem þú kemur til isl??

eibba

10:40 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ef ég gleymi henni fæ ég bara þína lánaða og við spilum krumma saman... kem á þriðjudag... var svo planið að fá okkur verðlaun á barnum á miðvikudag með skvísunum???

12:32 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu já ekki málið að grafa upp mínar flautur...jafnvel gítarinn ef við erum í stuði :)
Ég er til í öllara á miðvikudaginn :)

4:41 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hæ krissa! Skrifaðu..

10:32 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home