sunnudagur, mars 13, 2005

Namm-namm

Í Føtex er hægt að kaupa fullt af mjög svo smekklegum og sællegum nammipokum. Ég var að spökúlera á hversu löngum tíma maður á að borða pokana. Ég keypti mér t.d. einn Drakúla poka, einn Werthers, einn hlauppoka og einn snakkpoka í gær. Ég kláraði þá á 10 klst... mér finnst það mis. Ég er á því að á pokunum eigi að standa t.d. að þessi poki er áætlaður fyrir fjórar persónur á einu kvöldi eða þennan poka má millivigtarmanneksja borða á sex tímum eða hafa svona kíló-hæð töflu.... ef þú ert 152 sm og 98 kg þá áttu að borða þennan poka á 13 vikum. Allaveganna er bransinn nógu upptekinn að segja manni frá rauðum eða sjálflýsandi fituprósentum á öllu öðru. Sem er náttúrlega allt bara helvítis lygi... en manni líður samt vel að hafa þetta þarna. Fokk fallegu nammipokunum.
Er bara búin að bransast í stæinu alla helgina. Agalegt. Er alltaf jafn virk að skrifa þegar ég er að stæast af því að þá leiðist mér eilítið smá. Fékk nú samt nokkra öl í gærkveldi. Fór að hitta Gerðu, Dísu og Stefán... en hann er einmitt loksins komin til að vera í Danmörkinni. Þar á hann nefnilega að eiga heima – hjá Dísu sinni. Hélt að heilinn minn myndi komast í sérdeilis góðan spídígonzalesfíling ef ég myndi fá mér verðlaun. En nei, ég er ennþá ekki búin að finna lausnina á vandamálinu mínu og vandamálunum fjölgar. Er orðin svo stressuð að ég er að spá í að hringja í prófessorinn minn á sunnudegi og öskra á hjálp. Mjög heilbrigt. Það er bara vika til stefnu. Argasta garg. Kannski ég reyni að fá heilann í spíttið með fleiri nammsipokum og 2 lítrum af kaffi... eða kannski ætti ég bara að vera heilbrigð og skella mér í fjörfríkssenterið aka ræktin. Naaahhhh... nei.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

elska tetta SPØKULERA ord hjá tér Krizzz..

Oooog hvad segiru engin stemmning fyrir Ræktos.. usss;)

Matthildur

12:07 f.h.  
Blogger kristjana kind said...

Jú jú... Krizz er að rífa upp stemmarann fyrir ræktina í þriðja skiptið á þessu ári... Kannski við sjáumst í Kroppahöllinni í vikunni... ég er þessi massaða í bekkpressunni!!! Knúsí-knús, Krissa

6:31 e.h.  
Blogger kristjana kind said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

6:31 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home