sunnudagur, júlí 31, 2005

Skæli-skæli-snökkt-snökkt

ætlaði að fara að setja linka inn og þá hvarf allt... og þá er bara best að skipta um lúkk. það er verslunarmannahelgi og mig langar að vera á innipúkanum á Íslandi. ekki hér í þessu rigningar- og þrumuveðri í árósum. það væri nú samt alveg notó að vera inni og hlusta á rigninguna ef maður væri í góðu skapi. ég er það ekki. ég er alveg að deyja í sálartetrinu af því að i-podinn minn er farinn frá mér. það er eitthvað dáið inní mér. ég er þvílíkt búin að flörta og reyna við jákvæðnina síðan á fimmtudag og á laugardeginu hélt ég jafnvel að ég myndi jafna mig. nei. í dag kom sprenging. raunveruleikinn sparkaði í rassinn á mér. ég er alveg ónýt án hans. fullt af dóti inní honum sem ég á ekki neinsstaðar. æ, ætli ég fari ekki bara að skæla. ekki bætir úr skák að tryggingarnar vilja líklega ekki gefa mér nýjan kall þar sem ég á ekki kvittun fyrir eiginmanni mínum. æ, æ... bágt ég á. búin að missa besta vin minn og þarf að læra að hjóla, labba, fara útí búð, í stærtó uppá nýtt. verð bara að safna péning fyrir nýjum manni og ég sem er ekki einu sinni búin að finna pening fyrir þeim gamla. hann var borgaður með íslenskum yfirdrætti.
vonandi gerist eitthvað himneskt eða skemmtilegt bráðum sem ég geti skrifað eitthvað jákvætt og fallegt.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

æi greyið mitt.....vorkenni þér svo... sem og herranum þínum sem er núna hjá einhverjum samviskulausum krimma sem hann þolir ekki og ég veit hann saknar voða góðu eyrnalyktar krissu sinnar...vildi óska þess að þú hefðir bara verið hér um helgina...það hefði verið svo svo gaman. Þú hefðir fullkomnað helgina! Ég týndi samt líka debetkortinu mínu í gær með ótrúlega mikið af skattapeningum og nýborguðum háum kennaralaunum....soldið sjokk.

6:42 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

AE grey Krissan min... sendi ther hamingjusamar hugsanir ur leidinlegu vinnunni minni... lofadu ad gera thad sama fyrir mig, OK? Er ad farast herna i gramyglunni, vildeg vaeri i bikini a strond med vel sterkan drykk med bleikri regnhlif... aeaeae....

7:12 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ojbarasta... voðalega getur fólk verið mikið fífl.... myndi gefa þér nýjan ef ég hefði ekki eytt andvirði nýs stykkis í pizzur og áfengisviðbjóð um helgina.... ojbara .... sit hérna komin aftur í vinnuna feit og sveitt ...

11:24 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home