föstudagur, desember 02, 2005

mmm.... helgarland

nú fer að líða að brottför – ferðinni er heitið í helgarland. kætir það mig með eindæmum. nú eru til smá monningar á reikningnum svo það er best að fagna því og kaupa sér nokkra drykki. lítið verið um almennilegar barferðir undanfarið. er vongóð um að tónleikar kvöldsins verði sérlega vel heppnaðir og ég vakni sæl og ljúf á morgun. enda ekki á hverjum degi sem tvö stykki girnileg dönsk eyrnakonfekt spila. fyrst skal þó simúlerað aðeins meira.
annars er ég mest lítið búin að gera annað en að vinna undanfarið. sá þó ógurlega fyndna mynd eitt kveldið. þetta er peter jackson myndin meet the feebles frá 1989... bjargaði vikunni! fyrir alla þá sem hleypa myrkrinu í lundina, þá mun þessi mynd örugglega hjálpa. tékk it át. svona pervertísk og ofbeldishneigð útgáfa að prúðuleikurunum með eiturlyfjum, pornói og látum. froskar að sprauta sig, flóðhestar að snappa og svona... ég er kannski kreisí, en mér fannst hún skondin.
luv...

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Froskar að sprauta sig!? Fuss!

6:21 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sá þessa einhvern tímann á menntaskólaárunum og hefur lengi langað að sjá hana aftur, hvar fannstu hana?

6:10 e.h.  
Blogger kristjana kind said...

já, stjáni minn... það er greinilega svartur sauður í þinni fjölskyldu. allir þurfa að eiga einn slíkan. þessi froskur á samt voða bágt af því að hann upplifði svo mikla skelfingu á sínum tíma í nam!
annars fékk þessa mynd lánaða... en það er nú örugglega hægt að fá hana í byens video...

2:31 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home